miðvikudagur, maí 24, 2006

Er einhver sem að les þetta blogg fyrir utan Margréti????

þriðjudagur, maí 23, 2006

Heimilislaus

Jæja þá erum við búin að selja húsið og fengum bara ágætt fyrir það, erum mjög sátt. Núna er bara verið að pakka og selja sumt af búslóðinni því við getum ekki geymt allt dótið á meðan við erum að byggja því við munum koma til með að búa út í Garði hjá mömmu og pabba hennar Margrétar, þá er bara að fara að láta teikna fyrir okkur hús og undirbúa ferlið, fáum afhenta lóðina í Október.

föstudagur, maí 19, 2006

Stud Tirelessly Exchanging Indulgence and Naughty Intimacy
Ofnæmi

Ég er búinn að vera handónýtur síðustu daga því að ég fékk svona heiftarleg ofnæmisviðbrögð við Voltaren rapid töflunum sem ég fékk við bólgunni í ökklanum. Varð allur þrútinn og klæjaði alveg skelfilega, meiddi mig svo í iljunum að ég gat varla gengið, ekki skemmtilegt. Er núna á allskonar lyfjum og líður bara mikið betur.

Hvað var málið með þessa Silvíu Night?? gat ekkert sungið, ég hélt að hún væri söngkona!!

Thierry Henry hefur gefið það út að hann ætli ekki að yfirgefa Arsenal heldur ætlar hann að skrifa undir 4 ára samning. :) ég er mjög ánægður með það, þá vinnum við bara meistaradeildina á næsta ári.

fimmtudagur, maí 11, 2006

Meiddi mig


Ég varð fyrir því óláni í vinnunni í gær að snúa mig svona svakalega á ökklanum í fótbolta. ég beint upp á slysó í röntgen myndatöku, og á meðan ég var að bíða eftir lækninum þá bólgnaði löppin á mér þvílíkt, svo kom í ljós að ég var sem betur fer ekki brotinn heldur tognaður. Læknirinn sagði að ef ég væri ekki orðinn þokkalegur eftir helgi þá þyrfti ég að koma aftur í röntgen því að það er oft sem að sprungur í beinum sjást ekki fyrir bólgu. Held samt að ég verði fljótur að jafna mig því ég er heljarmenni....
En ég á svo góða að, hitti Rut Frænku í apótekinu þegar ég var að kaupa hækjur og hún bauðst til þess að taka bílinn og skutla mér upp á slysó::)

og mín yndislega kona kom og sótti mig og vorkenndi mér svo mikið að hún fór beint á Olsen og keypti gúmmilaði handa mér að borða.
Svo kom tengdamamma og sótti Önnu Steinu áðan því það er nú ekkert svo auðvelt að hugsa um lítið barn þegar maður er á hækjum. ýtti henni bara áfram með hækjunum eða þurfti að plata hana til þess að koma ef hún vildi það ekki með því að þykjast hafa eitthvað rosalega spennandi hjá mér og eins forvitin og hún er þá mátti hún sko alls ekki missa af því ef ég væri með eitthvað...

jæja ég ætla að fara að kæla á mér fótinn.

föstudagur, maí 05, 2006

Húsið komið á sölu

Við erum búin að setja húsið okkar á sölu, þannig ef að einhver vill eignast parhús á besta stað í bænum þá er núna tækifærið. Hérna er slóðin http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=201248
Margrét er líka búin að vera dugleg að selja eigur okkar, það er fólk að koma hingað og kaupa ótrúlegustu hluti, sófasett, hesta hnakk, tölvuborð, skíði, skó og allt mulig.
hún ætti kannski bara að auglýsa á ebay.

laugardagur, apríl 29, 2006

Stelpur og að taka sig til

Hvað er málið með stelpur og að vera lengi að taka sig til á djammið????
Ég kom heim fyrir rúmum klukkutíma og þá var Margrét í sturtu og hún er enn að taka sig til, ég fór í sturtu þegar hún var búin og það er klukkutími síðan ég var tilbúinn. Það tekur ekki tvo tíma að taka sig til þó svo að maður væri með hár niður á hæla!!!
Ég er viss um að stelpur geri þetta bara til þess að pirra okkur strákana, svona til að ath hvað við elskum þær mikið, lesa það ábyggilega út úr því hve óþolinmóðir við verðum.
Ég hef oft spáð í því að fara bara út og segja bara við sjáumst þegar þú ert tilbúin ástin mín, en það má ekki, en þeim finnst allt í lagi að við sitjum og bíðum hálft kvöldið eftir þeim!!!
BULLSHIT!!!!

föstudagur, apríl 28, 2006

Sorglegt....



Ég er alveg miður mín...
Þannig er mál með vexti að Arsenal eru komnir í úrslit í Meistaradeildinni og ég og Óli Ásgeir voru búnir að ákveða að fara á úrslitaleikinn ef Arsenal myndi ná þangað, og það var Óli sem átti þá hugmynd og var þvílíkt búinn að kynda undir mér í að fara.
Ég, sem var þá viss um að við myndum fara ef að Arsenal næðu í úrslitin, fór að vinna í því að fá miða á leikinn, var búinn að finna miða á Ebay á þokkalegu verði en vildi ekki taka sénsinn á Ebay með svona mikilvægan hlut þannig að ég skráði okkur á lista hjá Úrval útsýn og svo í síðustu viku hringdi ég í Óla til að segja honum að við fengjum líklega miða þá segir hann mér að hann sé hættur við að fara, hann hafi ákveðið að fara til út með skólafélögum sínum, sami maður og hafði 2 vikum áður þvílíkt verið að tala um að við YRÐUM að fara á úrslitaleikinn ef Arsenal kæmist í hann. FALLEGI SKÍTUXINN að að hætta við, ég var orðinn þvílíkt heitur fyrir því að fara á leikinn enda ekki á hverjum degi sem að maður getur séð liðið sitt spila til úrslita í Meistaradeildinni og "nota bene" þetta er í fyrsta skipti sem að Arsenal kemst í úrslit í sögu félagsins.
Og núna get ég ekki fundið neinn til þess að fara með mér því að það tímir enginn að fara því að það kostar 150.000 að fara. Og varla fer ég einn.

Óli ef þú lest þetta þá er ég EKKI ánægður með þig!!!

Ps

Ef einhver þekkir alveg ofboðslega skemmtilegan Arsenalaðdáenda sem vill fara með algjörlega ókunnugum Arsenalaðdáenda á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, látið mig þá vita. :)